Velkomið að sýna áhuga

Sýningarhúsin eru komin upp

Sjón er sögu ríkari. Þið eruð velkomin að koma til okkar og skoða húsin, hringið í Ingvar 846-7571 og mælið ykkur mót.

Sýningarhúsin eru komin upp

Sjón er sögu ríkari. Þið eruð velkomin að koma til okkar og skoða húsin, hringið í Ingvar 846-7571 og mælið ykkur mót.

Byggjum heimilið með þér frá A til Ö

Við einfalda byggingarferlið og fylgjum þér alla leið frá vali á lóð til fullbúins húss. Þú færð heildarlausn þar sem gæði, skilvirkni og fagmennska eru í fyrirrúmi.

Við aðstoðum við að velja rétta lóð, sjáum um hönnun og leyfisferli og tryggjum að allt sé tilbúið áður en framkvæmdir hefjast. Grunnvinna og sökkull eru unnin af fagfólki, á meðan einingarnar eru framleiddar við bestu aðstæður í Svíþjóð.

Þegar húsið kemur til landsins er allt tilbúið fyrir hraða og örugga uppsetningu. Við vinnum með traustum samstarfsaðilum og vönduðu efni sem hentar íslenskum aðstæðum.

Húsin eru afhent með vönduðum lausnum, þar á meðal sérframleiddum hurðum frá Nordan sem tryggja bæði öryggi og endingu.

Af hverju að velja okkur?

  1. Heildarlausn á einum stað
  2. Styttri byggingartími
  3. Stöðug og trygg gæði
  4. Lausnir hannaðar fyrir íslenskar aðstæður

Val á lóð

Þegar við völdum lóðina skoðuðum við nokkra hluti:

  • Fjarlægð í vatn, rafmagn og ljósleiðara.

  • Hversu djúpt þarf að grafa.

  • Eru vegirnir að lóðinni nógu góðir til að flytja 40ft gáma.

Teikningar

Við teiknum upp húsið og vinnum teiknisettið í samræmi við deiliskipulag. 

Skilum teikningunum inn rafrænt og fáum þær samþykktar.

Eftir það sækjum við um tryggingu Byggingastjóra og hefjum svo framkvæmdir.

Gröftur

Við mælum fyrir húsinu og skipuleggjum verkið í samráði við verkkaupa.

Þegar búið er að fylla í grunninn þá fáum við þjöppuprófun á púðann.

Fráveita

Við merkjum fyrir öllum veggjum og öllum fráveiturörum áður en við hefjum að grafa fyrir lögnum.

Þá fáum við lagnirnar réttar upp í gegnum sökklana

Sökkulkerfi

Hraðinn á uppsetningu sökkulkerfisins virðist vera 5 dagar að jafnaði þ.a.s frá því byrjað er að leggja lagnir í púða, þangað til búið er að steypa.

Framleiðsla

Samhliða því sem við setjum upp sökklana á Íslandi þá erum við með nokkra smiði í Svíþjóð sem setja saman einingarnar fyrir okkur.

Steypuvinna

Við vinnum með fagmönnum og látum þá sjá um steypuvinnuna fyrir okkur. 

Flutningur á húsum

Við pökkum húsunum á fleti í Svíþjóð og flytjum þau til Íslands. 

Til að draga sem mest úr flutningsskaða þá kemur efsti og neðsti panellinn í lausu.

Annað efni kemur í lokuðum gámum

Við reynum eftir fremsta megni að pakka sem mestu af efninu inn í gáma. Þá er efninu pakkað á þann hátt að hægt er að vinna sig inn í gáminn í samræmi við það hvernig húsin eru byggð, án þess að forfæra of mikið.

Þak

Við kaupum aluzink á Íslandi 0,6mm þykkt. 

Steinullin í þakið er einnig keypt á Íslandi. Annað efni er flutt inn.

Hurðar

Við fengum Nordan (sænskt fyrirtæki) til að sérframleiða hurðar fyrir okkur. 

– 3ja punkta læsing

3ja laga gler

– Ryðfrítt í lömum