Íþróttastyrkur

Arkitek styrkir leiðtoga framtíðarinnar

Hjá Arkitek hönnum við fyrir framtíðina. Við trúum því að öflugt íþróttastarf sé einn mikilvægasti grunnurinn að sterku samfélagi  þar sem agi, metnaður og liðsheild mætast.

Eigandi Arkitek hefur í mörg ár upplifað jákvæð áhrif íþrótta víða um heim. Við höfum því styrkt íþróttafólk undanfarin ár og ætlum að gera enn betur á því næsta!

Við leitum að 6 fyrirmyndum (3 strákum og 3 stelpum) sem munu hljóta 100.000 kr. afreksstyrk frá Arkitek.

Hverjir geta hlotið styrkinn?

Við höfum þrengt valskilyrðin í ár til að styðja við þá sem stefna allra lengst:

  • Fædd(ur) 2005 eða síðar.
  • Búseta á Íslandi.
  • Er góð fyrirmynd jafnt innan sem utan vallar (prúðmennska, elja og ástundun).
  • Stendur frammi fyrir kostnaðarsömu verkefni á næstunni (t.d. landsliðsverkefni, keppnisferð erlendis eða tækjakaup).

Til að fá að vera með í þessu þá þarf að setja like á síðu Arkitek (facebook og á Instagram) og deila færslunni. Skjáskot af því og eftirtalin atriði skal senda á ingvar@arkitek.is

1. Upplýsingar um umsækjanda:

  • Íþróttafélag: [Nafn félags og deildar]

  • Tengiliður (þjálfari/stjórnarmaður): [Nafn og netfang]

2. Upplýsingar um íþróttamanninn:

  • Nafn: [Fullt nafn]

  • Fæðingarár: [Verður að vera 2005 eða síðar]

  • Íþróttagrein: [Grein]

3. Rökstuðningur fyrir tilnefningu (hámark 200 orð):

  • Hér þarf að koma fram hvers vegna þessi einstaklingur er valinn sem fulltrúi félagsins. Hvernig er hann góð fyrirmynd fyrir aðra iðkendur (t.d. mætingar, hegðun, aðstoð við aðra)?

4. Framtíðarverkefni og þörf:

  • Lýsið stuttlega því verkefni sem styrkurinn á að styðja við (t.d. keppnisferð, sérhæfður búnaður eða æfingabúðir erlendis). Hvernig mun þessi 100.000 kr. styrkur breyta stöðunni fyrir iðkandann?

5. Staðfesting á samþykki:

  • [ ] Ég staðfesti að viðkomandi iðkandi og forráðamenn hans gefa samþykki fyrir því að mynd af afhendingu styrksins megi birtast á miðlum Arkitek ef af úthlutun verður.

 #Arkitek #Stuðningur #Íþróttir #Framtíðin #Afreksstyrkur

Hér er listi yfir þá sem hafa hlotið styrki frá okkur

Við hvetjum kraftmikla til að sækja um.

Þríþraut

Þríþrautarklúbburinn Miðnæturs stríðsmenn er klúbburinn sem Arkitek mun styðja 2024. Þetta er hópur fólks sem aðstoðar börn og ungmenni við æfingar og daglegt amstur. Við hjá Arkitek styðjum við klúbbinn þannig að hann geti haldið áfram að vera góð fyrirmynd allra. 

Haldið áfram að gera ykkar besta!

Erik Wickström

Erik hefur langa keppnissögu að baki þegar kemur að gönguskíðum. Hann hefur unnið til ótal verðlauna sem íþróttamaður og er gríðarlega góð fyrirmynd fyrir unga fólkið í samfélaginu. 

Hafir þú áhuga á að komast í þjálfun hjá honum þá mælum við hjá Arkitek með honum sem þjálfara. Bæði í einkatíma og sem fjarþjálfun. 

Alexander Berggren

Alexander kemur í grunninn úr sundinu en hefur nú síðastliðin ár lagt áherslu á þríþraut og þá aðallega IronMan keppnir. Hann er með mikið af æfingaferðum út um Evrópu sem eru sniðnar að þríþrautinni. Endilega komdu þér í samband við hann ef þú ætlar að koma þér lengra í þríþrautinni.

Við hjá Arkitek erum gríðarlega stolt að geta aðstoðað þennan unga mann í að ná sínum markmiðum.

Bergspring

Sameiginlegur staður fyrir fólk sem vill stunda heilbrigðan lífstíl. Viðkomandi hópur stundar víðavangshlaup víða í Evrópu og vill sameina hlaupara til að mætast og hafa gaman. 

Arkitek telur að viðkomandi hópur sé gríðarlega mikilvægur, þannig að fólk hugsi betur um sína heilsu. Því erum við stolt af því að kalla okkur styrktaraðilar viðkomandi hóps. 

Hafir þú áhuga á að keppa fyrir þeirra hönd þá er bara að láta heyra í sér.

LANDSBJÖRG

Við styrkjum Landsbjörgu eins og allir aðrir ættu að gera.

https://www.landsbjorg.is/

Bridge

Við vitum að það er ekki nóg að rækta líkamann þar sem hugurinn þarf að fylgja með. Bridge er gríðarlega góð íþrótt fyrir hugann og erum við því stolt af því að styrkja hóp áhugasamra bridgespilara sem taka þátt í Íslandsmótinu í Bridge 2023

Landspítalinn

Þar vorum við fyrsti styrktaraðilinn til við kaup á svokölluðum aðgerðarþjarka. Eiríkur Jónsson var á bak við þetta hjá þeim. 

Að styrkja viðkomandi klúbb gerum við með ánægju. 

Jólasveinninn

Tobias Guldtrand er gull að manni sem hefur aðstoðað börn sem hafa fengið krabbamein. Nú hefur hann safnað saman peningum í mörg ár til að styrkja rannsóknir á krabbameini samhliða því að aðstoða börn á þessum erfiðu tímum.

Hans mottó er að börn eiga að geta verið börn þó svo að þau séu með krabbamein.

Fram

Við styrkjum íþróttafélagið Fram í Úlfarsárdal og erum með merkingar um víðan fótboltavöllinn í sumar.

Í gegnum árin hefur Fram verið uppspretta sterkrar fyrirmyndar í íslensku íþróttalífi. Frá goðsögnum á borð við Ríkharð Jónsson til alþjóðlegra afreksmanna eins og Ólafs Stefánssonar endurspeglar félagið gildi eins og vinnusemi, liðsheild og metnað.

Þessi gildi lifa áfram í starfi félagsins í dag, þar sem lögð er áhersla á að móta ekki aðeins góða íþróttamenn heldur einnig sterka einstaklinga sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið.