Gæði efna

Hágæða timbur frá Svíþjóð

Við notumst við timbur sem vex í kringum verksmiðjurnar okkar tvær, fyrir hvert tré sem hoggið er þá plöntum við nýju í Svíþjóð. Á íslandi ætlum við að gera það sama. 

Þéttir árhringir gera viðinn:

  • Sterkari og stöðugri

  • Minna rakadrægan

  • Betri til langtímanotkunar

Þetta skilar sér í húsum sem endast lengur og standast betur íslenskar aðstæður.

Festingar klæðninga

Við notumst við ryðfría nagla þegar kemur að festingum utanhúss. Að notast við ryðfrítt þegar kemur að festingum fyrir klæðningar hámarkar endingu og gæði hússins.

Ef notast er til dæmis við galvaniserað efni þá er hjúpurinn aðeins með góða húð, og ef viðkomandi saumur gefur eftir þá myndast ryð og húsið þitt fær ryðtauma eftir einhvern tíma.

Þaklausnir

Ef engar séróskir eru til staðar og þakhalli hentar fyrir bárujárn, veljum við AluZink 0,6 mm sem okkar fyrsta kost. Það er sérstaklega hentugt fyrir íslenskt veðurfar þar sem miklar kröfur eru gerðar til endingar og veðurþols.

Ef valinn er litaður AluZink, notum við 0,6 mm efni. Í báðum tilfellum er um að ræða það þykkasta sem í boði er á íslenskum markaði.

Einangrun í þaki

  • Staðal einangrun: 220 mm, sem uppfyllir allar íslenskar kröfur

  • Valmöguleiki: +45 mm steinull

Aukin einangrun getur skilað um 3–4% minni varmaþörf, sem bætir orkunýtingu hússins.

Gluggar sem spara orku og endast

Gluggar okkar koma frá Nordiska Fönster, rótgrónum sænskum framleiðanda og einum af leiðandi fyrirtækjum á Norðurlöndum í gluggum og útidyrahurðum.

Gluggar og hurðir geta staðið fyrir allt að 35% af orkutapi húss. Þess vegna notum við þrefalt gler sem staðal, sem skilar verulegum sparnaði í orkunotkun.

Ending og gæði í fyrirrúmi

Við notum yfirleitt:

  • Ál að utan – ver gegn veðri og eykur endingu

  • Timbur að innan – skapar hlýlegt og náttúrulegt andrúmsloft

Þessi samsetning tryggir bæði langan líftíma og fallega ásýnd innanhúss.

Meiri orkunýting

Þrefalt gler getur skilað um 12% minni orkunotkun miðað við tvöfalt gler – fjárfesting sem borgar sig til lengri tíma.

Útveggir

Útveggirnir eru framleiddir í allt að 9 metra lengjum, sem tryggir hraðari og skilvirkari uppbyggingu hússins.

Þyngd veggja er yfirleitt á bilinu 500–900 kg, sem endurspeglar trausta og vandaða uppbyggingu.

Veggjasamsetning

Veggirnir eru hannaðir með áherslu á endingu, einangrun og loftun:

  • Panell, grunnmálaður + ein umferð af lit

  • 28×70 mm loftunargrind með músaneti neðst

  • 12 mm krossviður límdur á burðargrind

  • 45×170 mm burðargrind með einangrun*

  • Rakavarnarlag

  • 45 mm lagnagrind

Hannaðir fyrir íslenskar aðstæður

Veggirnir hafa sannað sig í íslensku veðurfari og þola mikið vindálag, bæði við uppsetningu og til lengri tíma.

Aukin einangrun og sparnaður

Þessi uppbygging er 25 mm þykkari en hefðbundnir veggir á Íslandi, sem skilar yfir 2% minni varmatapi og betri orkunýtingu hússins.

Sökkulkerfi

Húsin eru reist á sænsku sökkulkerfi sem hefur verið notað á Norðurlöndum í áratugi og hefur sannað gildi sitt í krefjandi aðstæðum.

Helstu kostir

  • Léttar og einfaldar einingar við uppsetningu

  • Hraðari framkvæmdatími

  • Allt að 3x þykkari einangrun en hefðbundið er á Íslandi

  • Engar kuldabrýr inn í húsið*

  • Aðeins þarf eina steypu á verkstað

  • Lagnir samþættar í kerfinu**

  • Fyllt með möl sem tryggir stöðugleika við steypu

Betri orkunýting

Kerfið dregur úr varmatapi og getur skilað 4–6% sparnaði í upphitunarkostnaði.

Orkunotkun

Þegar Arkitek hús eru borin saman við hefðbundna byggingu á Íslandi kemur í ljós verulegur munur í orkunýtni.

Hvar sparnaðurinn myndast

  • Sökkulkerfi: ~5% sparnaður

  • Útveggir: ~2% sparnaður

  • Gluggar (þrefalt gler): ~12% sparnaður

  • Þakeinangrun (+45 mm): ~3–4% sparnaður

Samtals: um 20% minni orkunotkun

Hvað þýðir þetta fyrir þig?

Algengur árlegur hitunarkostnaður á Íslandi er um 150.000–200.000 kr.
Með bættri orkunýtni getur sparnaður numið um:

30.000–40.000 kr. á ári
(og meira fyrir stærri eignir)

Byggt á raunverulegum gögnum

Tölurnar byggja á útreikningum úr þegar byggðum húsum og raunnotkun.

CE merking

Arkitek vinnur einungis með gæðaefni, sem hefur fengið CE merkingu. Þannig að hver einasta skrúfa hefur vottun á bak við sig. 

Allt timbur sem notast er við kemur úr sjálfbærum skógum í Svíþjóð sem eru stutt frá sögunarmillu. 

Flutningsvegalengd á húsunum frá verksmiðju til Íslands er með þeim allra lægstu sem í boði eru. 

Þetta gerum við til að tryggja að kolefnissporið á einingahúsunum er sem lægst. 