Ferlið

Val á lóð

Við förum yfir aðstæður á lóð, kvaðir, aðgengi, lagnir og það sem þarf að hafa í huga áður en hönnun hefst.

Hönnun húss

Við teiknum húsið út frá þínum þörfum, stærð, fjölda herbergja og notkun. Húsið er jafnframt unnið upp í 3D svo auðveldara sé að sjá skipulag og form.

Samþykktir

Aðaluppdrættir eru unnir og sendir inn til samþykktar. Þegar samþykktir liggja fyrir klárum við teiknisett og undirbúum næstu verkþætti.

Undirbúningur

Unnið er að gröft, fráveitu, inntökum og undirlagi. Sökkulkerfi er sett upp og steypt í samræmi við hönnun og tæknilegar kröfur.

Flutningur

Samhliða undirbúningi á Íslandi er húsið framleitt í Svíþjóð. Þegar það er tilbúið er það flutt til landsins og á byggingarstað.

Uppsetning

Einingar eru hífðar á sinn stað og byggingin rís hratt. Veggir, gluggar og helstu ytri þættir koma tilbúnir að stórum hluta, sem styttir framkvæmdatíma.

Lokafrágangur

Eftir uppsetningu er unnið að lokafrágangi samkvæmt umfangi verkefnis og samningi.

Skýrt ferli frá fyrstu hugmynd að fullbúnu húsi

Við leggjum áherslu á einfalt og traust ferli þar sem þú hefur alltaf góða yfirsýn. Frá fyrstu hugmynd og hönnun, yfir í teikningar, samþykktir og undirbúning lóðar, til framleiðslu og uppsetningar. Við fylgjum þér alla leið.

Með samhliða vinnu í hönnun, framleiðslu og framkvæmd styttist byggingartíminn og áhætta minnkar. Niðurstaðan er vandað heimili sem er tilbúið á skemmri tíma en hefðbundnar byggingaraðferðir.